Thursday, February 3, 2011

3. feb. 2011

Snjókoma
Suð-vestan 4. m/s
-1 C°

Lagði af stað um kl. 9:15 og var lengi á leiðinn og mætti of seint í verkefnatíma hjá RT í ERII. Ekki gott það! Hins vegar var gaman að hjóla í snjónum og víða búið að ryðja stíga. Sérstaklega í Gbr. þar sem Silfurtúnið var til fyrirmyndar. Ég hafð mjög gaman að því hvað bæjarstarfsmaðurinn á snjóruðningstækinu hafði náð beinni línu. Sem gamall garðyrkjuverktaki þá þekki ég vel hversu mikla þjálfun þarf til að ná leikni á þessi tæki. Verst að ég var ekki með myndavélina á mér. Vonandi verður sami gæi á vakt næst þegar snjóar.
Að þessu sinn fór ég Skerjafjörðin í Fossvoginn á leiðinni heim. Það var ágætt að hjóla þar enda hafði stígurinn verið ruddur. Svo hafði Sjórin séð um að salta stóran hluta leiðarinnar þar flætt hafði yfir varnargarðinn. Aftur nagaði ég mig í handabakið fyrir að hafa ekki tekið myndavélina með.
Þegar ég kom í Fossvoginn, við Nesti eða N1, fauk aftur í mig. Sauðurinn sem hafði rutt götur í botni Kóp. hafði gert ser lítið fyrir og rutt snjónum inn á stíginn. Enginn fagmennska.
Um kvöldið hjólaði ég svo í Krikann á fund og á æfingu.

Ég fór hægt yfir í dag en hafði á köflum heilmikið fyrir því að komast áfram. Þrátt fyrir að færðin sé ekki upp sitt besta þá er gaman að hjóla í snjónum. Ég væri samt til í að vera á betri dekkjum, sérstaklega á leið upp brekkur.

Trip dist: 31.97 km.
Trip time: 2:04:00 klst.
Avg. speed: 15.46 kmh
Max spee: 31.70 kmh


Aðferð til að meta gæði hjólaleiða - Myndband

Meðfylgjandi er myndband sem segir frá rannsókn sem framkvæmd var í Austurríki. Tilgangurinn var að þróa aðferð (BiWET) til að meta gæði hjólaleiða með t.t.:

I. Umferðaröryggis
II. Umhverfisins
III. Landnotkunar
IV. Innviða.

Mér þykir liður II og III sérstaklega áhugaverður:
Umhverfi getur skipt hjólreiðamanna miklu máli við val á hjólaleiðum. Það er einfaldlega munur á því að hjóla þar sem umhverfið er aðlaðandi og þar sem það er óaðlaðandi.
Landnotkun skiptir einnig máli. Fjölbreytt og áhugaverð landnotkun hefur áhrif á leiðarval hjólreiðamanna.

Um lið I og IV hefur mikið verið fjallað. Kanski of mikið. Meiri áherslu ætti að leggja á gæði hjólaleiði með t.t. annarra þátta.

Hér að neðan er tengill sem vísar á myndbandið:
The Bikeability and Walkability Evaluation Table: Reliability and Application SciVee

Hjóladagbók 2. feb. 2011

Aftur gleymdi ég að taka stöðuna á veðrinu.

Ferðin til RVK var hefðbundin og ekkert óvenujulegt kom upp.
Á leiðinni til baka var hins vegar komin hríðarbylur og þegar þannig háttar er eiginlega nauðsynlegt að hafa einhvers konar hlífðargleraugu. Ég stoppaði í sjoppu í Hf. og splæsti ég á mig ódýrum sólgleraugum sem nýtast ágætlega í þetta.
Það hafði fennt í leiðina, en ekki svo að það hefði teljandi áhrif á aðstæður. Að vísu kom það fyrir í bröttum brekkum að ég spólaði þar sem snjórinn hafði þjappast og frosið. Ég ímynda mér að við þessar aðstæður sé gott að hafa nagla bæði að framan og aftan en ekki aðeins að framan líkt og ég geri.

Trip dist: 25.97 km
Trip time: 1:36:08 klst.
Avg. speed: 16.21 kmh
Max speed: 39.24 kmh

Wednesday, February 2, 2011

Hjóladagbók 1. feb. 2012

Gleymdi að taka veðrði í dag en það var ágætt. Lygnt, -3°C og skýjað.

Hefðbundin leið í morgun. Lagði af stað um 8:00 og var komin um 8:40. Ekkert markvert gerðist á leiðinni og mér gekk vel án þess að vera eitthvað að leggja á mig.
Ég ákvað að koma við í Ármúlanum og í Skeifunni á leiðinni heim. Leiðin varð því nokkuð lengri en venjulega. Frá Skeifunni fór ég Grensásveginn, yfir Bústaðaveginn og niður í Fossvoginn, yfir göngubrúna og út fyrir Kársnesið. Þaðan yfir Arnarnesið, gegnum Sjálandið og heim.
Um kvöldið fór ég svo með hundana í taumi vestur í bæ. Ég sleppti þeim lausum á útivistarsvæði við Herjólsfsgötu og hélt svo heim.

Hugleiðingar
Af hverju get ég ekki farið í suður þegar ég kem yfir hjólabrúnna yfir Kringlumýrarbraut að austan????



Gulu línurnar á myndinni hér að ofan sína leið mína úr Fossvogsdalnum í austri, yfir Kringlumýrarbraut. Ef ég ætla mér í suður, í átt að Kópavogi, þarf ég að staulast brattan troðning (meðfram þrepum fyrir gangandi vegfarendur) sem hefur myndast af dekkjum þúsunda hjólreiðamanna.

Tek mynd af þessu á morgun og útlisti frekar.

Trip dist: 42.02 km
Trip time: 2:27:44 klst.
Avg. speed: 17.08 kmh
Max speed: 42.89 kmh

Utanríkisráðherra dana gerir grein fyrir máli sínu



"...cycling is not just for the poor. It actually improving the mobility in the society in general"

Heimild: Copenhagenize

Sjónarhóll - Fyrir nesið

Mig langar að gera eitt að umtalsefni hér. Stígakerfi hjólreiðamanna á höfuðborgarsvæðinu er sundurslitið og samhengislaust á köflum. Það kemur engum á óvart sem notar kerfið. Hins vegar er það svo, á t.t. stöðum, að þú getur hreinlega villst ef þú þekkir ekki borgarhlutann þeim mun betur. Það á t.d. við á Kársnesinu. Þar er góður, jafnsléttur, malbikaður stígur sem er hluti af hinum s.k. Bláa stíg sem tengja á saman strandlínuna frá Straumsvík að Mógilsá við Esjurætur. Sannarlega hefur verið staðiði vel að verki víða en annarsstaðar virðist vera langt í úrbætur, eins og t.d. á Álftanesi og í Arnarnesi. En á Kársnesinu er þetta næst um því gott vegna þess að sá hluti stígsins sem liggur fyrir nesið og tengir saman leiðir norðan- og sunnanmegin er einfaldlega ekki til staðar og engar merkingar eða skilti sem vísa þér leið.



Myndin hér ofan sýnir hvað ég á við: Bláar línur sína stíginn norðan- og sunnanmegin en rauða línan þann legg þar sem engir innviðir eru til staðar og það sem meira er engar merkingar.
Best væri auvitað að haldið yrði áfram með stíginn, aðskildan frá umferð, fyrir nesið. En einnig væri ákjósanlegt að byrja bara á því að merkja línu og setja upp skilti sem beina hjólreiðamönnum og göngumönnum leiðina.
Hér með er skorað á bæjaryfirvöld í Kópavogi að bregðast skjótt við og bæta úr.

Tuesday, February 1, 2011

Falleg stuttmynd


EXPO bicycle city from martin de thurah on Vimeo.

Hvar eru allir hjálmarnir, gulu vestin, skór með stáltá, brynjan og hlífðargleraugun?

Heimild: http://www.copenhagencyclechic.com/