Showing posts with label Umhverfið. Show all posts
Showing posts with label Umhverfið. Show all posts

Monday, April 2, 2012

Beðið

"Uppgerðingur" við það sem eitt sinni var Félagasstofnun stúdenta (HG2012)

Sennilega það sem kallast "fixie" við Öskju (HG2012)

Thursday, March 29, 2012

Vorboðinn Haemoatopus ostralegus

Fyrir suma er lóan vorboðinn en í mínum huga er það tjaldurinn. Ég hef miklar mætur á fuglinum sem er vaðfugl af ættbálki strandfugla og telst til tjaldættar. Í morgun hjólaði ég fram á þrjá félaga að leik við hjólaleiðina sunnan Fossvogskirkjugarðs. Þeir stigu óútskýranlegan dans, sungu og trölluðu svo ekki var hægt annað en að hrífast af galsanum. Þó að þeir hafi ekki boðið upp á uppstillta myndatöku þá létu þeir sé fátt um finnast þótt ég staldraði við fylgdist með þeim úr nálægð. Vorið er komið.
Tjaldur á hjólaleið sunnan Fossvogskirkjugarðs (HG2012)

Tjaldur á hjólaleið sunnan Fossvogskirkjugarðs (HG2012)

Tjaldur á hjólaleið sunnan Fossvogskirkjugarðs (HG2012)

Tuesday, March 27, 2012

Trinidad

Úthverfi Trinidad (HG2011)

Trinidad (HG2011)

Trinidad (HG2012)

Trinidad (HG2012)

Reisulegur fákur í miðbæ Trinidad (HG2012)

Annar reisulegur fákur í Casa del Musica í Trinidad (HG2011)

Monday, March 26, 2012

Endurnýting

Við Öskju (HG2012)
Hugvitsamlega hannað bretti. Tveggja lítra gosflaska rist, sniðin og snildarlega fest við hjólið.

Friday, March 23, 2012

Stamminn. Enn af Kúbu

Í Havana (HG2011)
Þessi stelpa hefur verið um fimm ára aldurinn. Hún hjólaði áhyggjulaus, að því er virtist, á götum Havana. Sjálfur hafði ég ekki miklar áhyggjur af henni enda afar lítil og hæg umferð í miðborginni.

Í Vinealis (HG2012)
Það er vöruskortur á Kúbu. Ég sá hvergi barnastóla en það kom ekki í veg fyrir að foreldrar hjóluðu með börnin sín. Neyðin kennir naktri konu að spinna segir máltækið og það á vel við þar í landi. Íbúarnir eru sérfræðingar halda við hlutum og smíða það sem ekki fæst í búðum. Það sést vel á öllum gömlu bílunum sem enn eru götunum og hafa verið frá því fyrir bylting. Hvað þá bögglaberi með ásetu - ekkert mál.

Í Vinealis (HG2012)
Ein af mínum uppáhalds myndum. Það verður ekki fallegra. Myndin þarfnast engrar útskýringar.

Í Vinealis (HG2012)
Dæmigerð borgarmynd í landi byltingarinnar.

Wednesday, March 21, 2012

Stamminn

Plaza Vieja í Havana (HG2011)
Það eru engar tvær borgir eins og það er sannarlega engin borg eins og Havana á Kúbu. Aldrei hef ég komið á jafn þversagnakenndan stað. Hvergi er reisnin meiri og hvergi er niðurníðslan meiri. Fögur fyrirheit og jafnframt ömurlegar afleiðingar. Allt til alls en samt sem áður vöruskortur. Eldsneyti af skornum skammti og bílar einnig. Við þessar aðstæður virðast hjólreiðar þrífast vel. Havana er hjólreiðaborg og það á reyndar við um flestar borgir og bæi á eyjunni. Þrátt enga innviði og engar sérstakar aðstæður fyrir hjólreiðafólk. Og þrátt fyrir vöruskort og að það sé erfitt að verða sér út um nýjan hnakk, þá er reiðhjólið þarfasti þjónninn fyrir marga íbúa í landinu.

Í Vinealis (HG2012)

Tuesday, March 13, 2012

Garðabær leynir á sér

Nafnlaus restrasjón við Arnarnesvog (HG2012)
Garðabær hefur ekki orð á sér fyrir að vera frammúrstefnulegt sveitarfélag. Sumir myndu segja að sveitarfélagið væri íhaldssamt og jafnvel forpokað. Skemmst er að minnast umræðunnar um fyrirhugaða lagningu göngu- og hjólreiðastígs fyrir Arnarnes sem mætti harðri gagnrýni íbúa, sérstaklega í Arnarnesi. Stöku sinnum kemur þó fyrir að Garðbæingar séu fyrstir með fréttirnar. Ef undan er skilin Café Nauthóll þá er enga veitingasölu að finna við strandstíginn s.k. Nema í Arnarnesvogi þar sem reist hefur verið Kaffihús (sem ég reyndar veit ekki hvað heitir) með góðum sólpalli og útsýni yfir voginn og Bessastaði. Engin rekstur er þó á staðnum yfir vetrar mánuðina og það þykir mér miður. Hins vegar hugsa ég mér gott til glóðarinnar á komandi sumri þegar staðurinn opnar vonandi að nýju.



Saturday, May 28, 2011

Skilaboð

Við Skúlagötuna er blásið til veislu ...

HG 2011
... og við Barónsstíginn er einhverjum umhugað um sjávarútvegskerfið og þróun og horfur í atvinnumálum þjóðarinnar og byggðaþróun.

HG 2011