Showing posts with label Nöldur. Show all posts
Showing posts with label Nöldur. Show all posts

Saturday, March 31, 2012

Hvannadalur

Við Hvannavelli (HG2009)
Á Völlunum er ágætt skipulag með tilliti til hjólreiða og útivistar. Um hverfið liggja margir göngu- og hjólastígar sem hlykkjast skemmtilega um hraunið. Kannski ekki alltaf styðstu leiðina en skemmtilegar leiðir. Á kafla er bein og breið leið sem færir hjólreiðamanninn hratt í gegnum hverfið. En við Hvannavelli er leiðin rofin. Þar er einfaldlega ekki gert ráð fyrir að haldið sé áfram yfir götuna eins og sést á myndinni. Óskiljanlegt?

Thursday, February 24, 2011

Niðurlægingin við skólamölina


Skólamölin við Lækjarskóla (das2011)
 Lækjarskóli er ein sögufrægasta- og reisulegasta byggingin í Hafnarfirði. Skólinn og umhverfi hans er helgur staður í augum margra Hafnfirðinga. Húsið er enn til staðar og í ágætu standi en það sama verður ekki sagt um skólamölina.

Skólamölin er nefninlega ekki síður merkileg en húsið sjálft. Þar stigu margar af skærustu íþróttastjörnum bæjarins sín fyrstu skref: Geir Hallsteinsson, Kristján Arason og Þorgils Óttar, svo einhverjir séu nefndir. Í gamla íþróttahúsinu við skólann er "vagga handboltans" í Hafnarfirði og það vita allir sem eitthvað vita um handbolta að sú grein á rætur sínar að rekja í Hafnarfjörð. Auk þessa var þjóðhátiðardagurinn haldin hátíðlegur þar til margra ára. Þannig er skólamölin samofin bæjarumhverfinu og sögu Hafnarfjarðar sem þéttbýlis.

Ég er þeirrar skoðunar að þar sé farið illa með eitt sögufrægasta leik- og útivistarsvæði bæjarbúa í Hafnarfirði. Allt fram undir það síðasta var skólamölin mikið notuð og þar stóðu leiktæki, körfur, bekkir og mörk. Því hefur nú meira eða minna öllu verið rutt úr vegi svo koma megi fyrir bílum þeirra sem starfa í Tónlistarskóla HF. (sem að hluta er starfræktur í íþróttahúsinu) eða sækja aðra starfsemi sem fram fer í húsinu. Þar með hefur sagan verið fótum troðin í einni svipan - klippt á hefðina og eina leiksvæðinu í miðbænum verið eytt.

Sú er allt of oft raunin með staði og menningarminjar í bænum. Skipulagsyfirvöld hafa einstakt lag á að leiða hjá sér söguna og hefðina í þeim tilgangi að svara skammtímahagsmunum.
Er ekki komin tími til að við látum íbúana ganga fyrir bílunum?
Er ekki komin tími til að við séum stolt af sögu okkar og arfleifð í Hafnarfirð?

Ég legg til að skólamölin við Lækjarskóla verði aftur færð til vegs og virðingar og endurgerð með þarfir íbúa í bænum að markmiði en ekki bíleigenda.

Tuesday, February 8, 2011

Þeir vilja ryðja í Kóp. og RVK.

Ég hjólaði að venju í morgun þrátt fyrir að það væri nokkuð snjóþungt. Á leið minni frá Bjarnabæ í HÍ er áberandi hversu vel eða illa sveitarfélögin ryðja götur og göngustíga.

Í Hafnarfirði virðist metnaðurinn vera afar lítill fyrir því að hafa götur og göngustíga vel rudda hvað þá sandaða. Ég fór í langan göngutúr um bæinn með barnavagn í gærdag og átti engan annan kost heldur en að ganga á götunum. Það átti jafnt við um íbúagötur og þungar umferðagötur eins og Rekjavíkurveginn (þar sem ég skeytti engu um bílaröðina sem myndaðist fyrir aftan mig). Göngustígar höfðu lítið sem ekkert hafði verið ruddir, heldur bætt á með með því að moka af götum upp á göngustígana og gangstéttar. Það sem mesta athygli mína vakti var að ég varð ekki var við eina vél að störfum á þeim tíma sem ég var á ferli. Kanski bara tilviljun enda var ég ekki í alfaraleið heldur á Suðurgötu, Lækjargötu, Strandgötu, Reykjavíkurvegi, Flatahrauni, Sléttahrauni, Arnarhrauni, Álfaskeið, Mánastíg og Tjarnabraut.
Ekkert hafði breyst þegar ég lagði af stað í morgun í bænum og engin annar kostur en að ganga og hjóla á götum.

Þegar ég kom í Garðarbæ var ástandið einnig slæmt. a.m.k. frá Fjarðarkaupum að Silfurtúni sem reyndar var til fyrirmyndar miðað við aðstæður. Arnarnesið var hins vegar ekkert spes.
Þegar komið er í Kópavog breytist allt til batnaðar og rúmlega það. Mikið hefur verið lagt í að ryðja og sanda leiðir fyrir gangandi og hjólandi þar á bæ. Það sama gildir um Reykjavík, a.m.k. á minni leið. Frá Kópavogslæknum og að HÍ er aðstæður eins og best verður á kosið og sveitarfélögunum til sóma.
Líklega bíða menn eftir því að það hláni í Hafnf. og Gbr. enda skilst mér að það eigi að hlýna í dag og næstu daga.