![]() |
| Fjarðarpósturinn 15. sept. 2011 |
Monday, September 19, 2011
Niðurstöðufundur
Á vormánuðum var haldin opin fundur meðal bæjarbúa í Hafnarfirði varðandi hjólreiðar í bænum. Tilgangur fundarins var að afla gagna fyrir nefnd sem skipuð var um haustið og hafði það að markmiði að mót stefnu fyrir bæinn í málefnum hjólreiðamann. Nú hefur nefndin lokið störfum og kynnir skýrsluna
Hér með er skorað á alla sem málið varðar að mæta á fundinn og kynna sér niðurstöðurnar
Tuesday, September 13, 2011
Meira af bílastæðum og sóun á landi í Krikanum!
Formaður knattspyrnudeildar FH var býsna harðorður á heimasíðu félagsins varðandi bílastæðvandamál við Kaplakrika. Þar bendir hann réttilega á að þegar stórviðburðir fara fram á svæðinu annar bílastæðið ekki þeim fjölda sem heimsækir Krikann.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að í Kaplakrika eigi ekki að vera bílastæði. Ekki af þeim ástæðum að ég sé e-ð sérstaklega á móti bílum eða stæðum heldur vegna þess að þar er einfaldlega ekki pláss. Nú er svo komið að knattspyrnudeildin hefur ekki nægjanlegt æfingasvæði og þá þykir mér sem að allt of mikið svæði fari undir bíla. Vissulega kemur það sér vel þegar fram fara stórviðburðir, eins og áður getur, en það eru aðeins fáeinir dagar á ári. Miðað við hvað þrengir að Krikanum þá hafa FH-ingar ekki efni á að fórna svo stórum hluta af krikanum undir bílastæði.
Ég er þeirrar skoðunar bílastæðið við kaplakrika ætti að fjarlægja og hefjast handa við að byggja upp æfingsvæði fyrir knattspyrnuiðkendur þar í staðinn. Aðeins verði stæði fyrir örfáa bíla og leið heim að húsunum til að færa aðföng og til að koma að sjúkrabílum, rútum og slökkvuliðsbílum. Bílastæðið verði hins vegar flutt út fyrir Krikann, norðan megin, á auða lóð sem þar er.
Svo er alltaf hægt að labba eða hjóla á leiki eða æfingar!
Football & Bicycles in Copenhagen from Copenhagenize on Vimeo.

Bílastæði í Krikanum

Wednesday, August 17, 2011
Meðfylgjandi myndir sýna lítin hluta af gríðarlegum bílastæðum við HÍ og HR. Hér í HÍ hefur þegar verið tekin upp gjaldtaka við "skeifuna" fyrir fram aðalbygginguna en mér er ekki kunnugt um að slíkt hafi verið gert við HR. Sjálfur er ég gríðarlega ánægður með þessa gjaldtöku enda finn ég alltaf stæði þar þegar ég þarf á að halda og þarf ekki að ganga jafn langt til að sinna erindum mínum þegar ég kem á bíl. En þessar gjaldtökur hafa vakið viðbrögð meðal stúdenta og frekari hugmyndir um gjaldtöku eru mjög umdeildar.
Camebridge háskóli er ein elsta og virtasta menntastofnun í heiminum og þar á bæ eru stjórnendur einnig að glíma við sama vanda og hér á land - of fá bílastæði og of mikið pláss og kostnaður við gerð og rekstur bílastæða. Þeirra ráð eru þau að banna nemum að koma á bílum skólann. Svo einfallt er það. Ein íhaldsamasta stofnun veraldar hefur tekið þá frammúrstefnulegu ákvörðun að hvetja nemendur til að notfæra sér reiðhjól og almenningssamgöngur fremur en að keyra upp að dyrum á eigin bílum (undantekningar eru gerðar fyrir fatlaða). Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og Cambridge borg er í dag ein þeirra borga sem hefur náð hvað mestum árangri við að stemma stigum við bílvæðingunni.
Það sama verður ekki sagt um fjórar af stærstu borgunum í Florida.
| (Bílastæði fyrir framan HÍ HG2011) |
| (Bílastæði við HR HG2011) |
Það sama verður ekki sagt um fjórar af stærstu borgunum í Florida.
Tuesday, August 16, 2011
Skemmtileg þróun við Nauthólsveg
Það hefur heillað mig hvernig hjólreiðamenn fara sínar eigin leiðir óháð aðstöðu fyrir hjólreiðafólk í borginni. Þannig hjóla hjólreiðamenn á móti einstefnu, á gangstéttum, á götum, göngustígum og yfir grasbala svo dæmi séu tekin. Allt eftir því hvaða leið þeir eru að fara og hvað reynist greiðfærast.
Myndin hér að neðan var tekin fyrir tæpu ári síðan og sýnir hvernig hjólreiðamenn hafa markað sín spor í jörðina við Nauthólsveg
Á leið minni í Öskju í morgun rak ég svo augun í nýlega framkvæmd á sama stað. Svo virðist sem að samgönguyfirvöld í borginn sé með á nótunum og bregðast við á viðeigandi hátt. Þar hefur nú verið byggt upp undirlag fyrir samgöngustíg, væntanlega ætlaðan gangandi-og hjólandi vegfarendum, sem síðar verður malbikað.
Ef að samgönguyfirvöld er næm fyrir þörfum gangandi- og hjólandi vegfarenda geta þessir aðilar þróað samgöngnet borgarinnar í sameingu byggða reynslu þeirra sem nota. Oft hefur manni einmitt fundist sem að sú reynsla sem þegar er til staðar sé virt að vettugi við hönnun borgarumhverfisins. Vel gert!
Myndin hér að neðan var tekin fyrir tæpu ári síðan og sýnir hvernig hjólreiðamenn hafa markað sín spor í jörðina við Nauthólsveg
![]() |
| (Slóðamyndun við Nauthólsveg HG2010) |
| (Framkvæmdir við Nauthólsveg HG2011) |
Friday, August 12, 2011
Aftur að troðmyllunni
Reglulegar ferðir úr BB í HÍ eru hafnar að nýju eftir sumarfrí. Þrátt fyrir að hafa hjólað í allt sumar var ég lítið eitt styrður eftir fyrstu skiptin. Fæturnir eru þó enn eins og nýir enda hafa þeir aldrei verið vandamál eins og sjá má á myndinni hér að neðan.
Á leið minni um Kópavoginn hef ég undanfarið ítrekað rekist á mann og hund við undirgöngin við hinn sk. "skítalæk". Um er að ræða eldri, virðulegan mann og þann hraustlegasta rottweiler sem ég hef augum litið. Ég stóðst ekki mátið og tók mynd af þeim félögum með samþykki þess sem hafði orð fyrir þeim. Þrátt fyrir illúðlegt útlit og vafasamt orðspor á tímum þar sem að hundar sæta fordómum þá reyndist strákurinn (sem ég man reyndar ekki hvað heitir) kelinn og vinalegur. Ég efast ekki um að eigandinn sé það líka ef að á reynir.
Sólin er blessunarlega farin að lækka en ég hef aldrei verið barn sumarsólstöðunnar. Kvöld- og náttmyrkrið er mér fremur að skapi og haustið er sá tími ársins þegar ég er í hvað mestri sátt við náttúruna. Ég býð haustið og um leið vetrarhjólreiðarnar hjartanlega velkomnar að nýju. Ég get ekki sagt að ég hafi saknað þess að hjóla í snjó og slyddu en árstíðarnar skyldi bjóða velkomnar og örlögum sínum um leið.
| (HG2011) |
| (HG2011) |
Saturday, May 28, 2011
Skilaboð
Thursday, May 26, 2011
Reykjavík chainsaw massacre
Í borginni stendur yfir umfangsmikið skógarhögg. Á hverjum degi eru stór tré felld miskunarlaust með það að markmiði að "fá útsýni" eða "opna garðinn fyrir sólinni". Það eru ekki mörg merkileg tré í borginni en saman mynda þau heild sem glæða mannlífið og gera okkur íbúunum kleift að færa daglegt líf út undir beran himinn.
"Útsýni" og "sól" er það sem Reykvíkingar sækjast eftir í sínum görðum. Á sama tíma hefur skipulag borgarinnar miðað að því að reysa Skuggahverfi.
Það er með öllu óskiljanlegt hvernig skipulagsyfirvöld í Reykjavík gátu fundið það út að þetta væri líklegt til að auka lífsgæði Reykvíkinga. Ef það hefur þá verið haft að markmiði.
Hvernig væri nú að láta af þessu skógarhöggi og njóta þess að loksins sé að verða lífvænlegt í borginni. Sum þeirra trjá sem nú sæta ofsóknum hafa staðið lengur en flestir ábúendur í borginni. Beinið sjónum ykkar heldur að skipulagsfræðingunum og byggingaverkkunum sem vilja reisa sér minnisvarða um borgina. Ég er þó ekki að mælast til að þeir séu sagaðir niður.
| Fjölnisvegur (HG 2011) |
| Skuggahverfið (HG 2011) |
Hvernig væri nú að láta af þessu skógarhöggi og njóta þess að loksins sé að verða lífvænlegt í borginni. Sum þeirra trjá sem nú sæta ofsóknum hafa staðið lengur en flestir ábúendur í borginni. Beinið sjónum ykkar heldur að skipulagsfræðingunum og byggingaverkkunum sem vilja reisa sér minnisvarða um borgina. Ég er þó ekki að mælast til að þeir séu sagaðir niður.
Subscribe to:
Posts (Atom)