Staldrað við á Ingólfstorgi (HG2012) |
Monday, May 7, 2012
Landfræði á hjólum
Thursday, April 26, 2012
"klassaðu" gamla settið
Það fylgir vorinu að nýjar vörur fylla hjólreiðaverslanir, og ekki að ósekju. Mörgum langar að hjóla á sumrin og jafnvel að nota hjólið í samgöngum. Ég er oft spurður af fólki sem hyggst byrja að hjóla í skólann eða vinnuna: hvernig hjól á ég að fá mér og hvernig útbúnað á ég að kaupa? Alltaf svara ég á sama hátt: áttu ekki hjól í skúrnum eða kjallaranum og áttu ekki góðan flíspeysu og regnjakka? Oftar en ekki svarið: Já, en hjólið er orðið svo gamalt og bilað ...og þarf maður ekki sérstakan útbúnað, fatnað osvfrv.? Þá er næsta spurning: er ekki hægt að gera við hjólið og til hvers þarftu sérstakan útbúnað?
Á flestum heimilum eru til gömul hjól sem ýmist eru í lagi eða þarfnast smávægilegra lagfæringa svo að hægt sé að nota þau. Það að engin ástæða til að kaupa nýtt hjól til að byrja að hjóla. Hjól eru þeirrar náttúru gædd að það er tiltölulega auðvelt og ódýrt að gera við þau. Og varðandi útbúnaðinn, þá er það mín reynsla að Íslendingar kunna að klæða sig fyrir veðri og vindum og að á flestum heimilum er til góðir stakkar eða úlpur.
Því segi ég við þá sem vilja prófa að nota reiðhjól í samgöngum að það sé mjög einfalt. Gerðu við eða láttu gera við gamla hjólið og kauptu þér góða húfu og fingravettlinga. Það þarf ekki að kosta mikið og er alls ekki mikil fyrirhöfn að byrja að hjóla. Nú, fyrir þá sem ekki eiga gamalt hjól eða dauðlangar að kaupa sér nýtt þá skil ég það vel. Ég á sjálfur mínar sælustu stundir á netinu að skoða ný hjól eða á hjólreiðaverslunum þar sem lyktin af málmum og gúmmí fyllir vitin.
Á flestum heimilum eru til gömul hjól sem ýmist eru í lagi eða þarfnast smávægilegra lagfæringa svo að hægt sé að nota þau. Það að engin ástæða til að kaupa nýtt hjól til að byrja að hjóla. Hjól eru þeirrar náttúru gædd að það er tiltölulega auðvelt og ódýrt að gera við þau. Og varðandi útbúnaðinn, þá er það mín reynsla að Íslendingar kunna að klæða sig fyrir veðri og vindum og að á flestum heimilum er til góðir stakkar eða úlpur.
Því segi ég við þá sem vilja prófa að nota reiðhjól í samgöngum að það sé mjög einfalt. Gerðu við eða láttu gera við gamla hjólið og kauptu þér góða húfu og fingravettlinga. Það þarf ekki að kosta mikið og er alls ekki mikil fyrirhöfn að byrja að hjóla. Nú, fyrir þá sem ekki eiga gamalt hjól eða dauðlangar að kaupa sér nýtt þá skil ég það vel. Ég á sjálfur mínar sælustu stundir á netinu að skoða ný hjól eða á hjólreiðaverslunum þar sem lyktin af málmum og gúmmí fyllir vitin.
Monday, April 23, 2012
999 kílómetrar
![]() |
999 km. þann 22. apríl 2012 við Hringbrauti (HG2012) |
Sunday, April 22, 2012
Verst og best í miðbænum
Lundasjoppa á horni Skólavörðustíg og Berstaðastrætis (HG2012) |
Fótbolti í Austurstræti (HG2012) |
Saturday, April 21, 2012
Gúrkutíð
Það er lítið um að vera á daglegum leiðum mínum um þessar mundir. Vissulega er sumarið komið en að öðru leiti er fátt markvert. Nema kannski í Garðabænum en þar er verið að leggja nýtt gervigras á aðalvöllunni og æfingasvæðið. Það er mér reyndar hulin ráðgáta að lið eins og Stjarna, sem virðist vera að festa sig í sessi sem alvöru lið, skuli veðja á gervigras fyrir aðalvöllinn. Fótbolti er íþrótt sem að á að spila á grasi en ekki gervigrasi og leikmenn vilja spila á grasi. Held að Stjarnan sé að veðja á rangan hest.
Stjörnuvöllurinn í Garðabæ (HG2012) |
Friday, April 20, 2012
Í vanskilum
Mongoose al (HG2012) |
Wednesday, April 18, 2012
Friday, April 13, 2012
Af hnökkum
Það mætti halda að þetta virðulega fræðiblogg væri að breytast í fjölskyldualbúm. Svo er þó ekki. Allar eru myndirnar teknar í hjólatúrum (og hjólatúrar eru sannarlega fræðilegir), oftar en ekki í hesthúsið hans afa Stebba þar sem hann heldur til ásamt tengdaforeldrum mínum. Fjölskyldan nær vel saman í hnakki, hvort heldur sem á hjóli eða hestbaki.
Það er margt líkt með því að sitja á hjóli og á hesti, fyrir utan þá augljósu staðreynd að hjólið er lífvana samsuða málma en hestar sprelllifandi og af ætt spendýra. Útivistin er sú sama og ferðhraðinn álíka. Og svo eru það hnakkarnir, hjólreiðamenn og hestamenn sitja í hnakki. Að vísu er hestahnakkur mun dýrari heldur en hnakkur á hjól. Því fékk ég að kynnast þegar keyptur var hnakkur fyrir hestastelpuna í fjölskyldunni af því tilefni að hún staðfestir skýrnina á næstu dögum. Sjálfur þarf ég að skipta um hnakk á hjólinu mínu enda sá gamli farin að láta verulega á sjá. Mér reiknast til að sómasamlegur hnakkur á hjól kosti um 1% af sómasamlegum hnakki á hest. Við vorum þó sammála feðginin um mikilvægi góðra hnakka fyrir rass, læri og bak en ekki síst ánægjuna af því að sitja í nýjum og hnakki.
Myndbandið hér að ofan var tekið á um Páskana við hesthúsið hans afa í Hlíðarþúfum. Þar má sjá þær Björk (14) og Rósu (5) koma skeiðandi í hlað á Júpiter og Hrappi. Fyrir hestaáhugafólk þá hef ég ekki hugmynd um hvaðan þeir eru ættaðir. Hitt veit ég og get stafest að stúlkurnar eru dætur mínar, ættaður úr Bjarnabæ.
Friday, April 6, 2012
Með Breka og Flosa
Wednesday, April 4, 2012
Kortaveisla í boði 220
![]() |
Göngu- og hjólaleiðakort Hafnarfjarðarbæjar (www.hafnarfjordur.is) |
Annars þótti mér skokkleiðakortið nokkuð gott og sannarlega vel til þess fallið að hvetja til skokks (ekki að það þurfi um þessar mundir) og gæti reynst sem hugmyndabanki fyrir einhverja. Önnur kort sýna gamlar og klassískar gönguleiðir um bæinn og upplandið.
Þegar allt kemur til alls eru kortin fín og aðgengileg á einum stað. Ég hvet fólk til að kynna sér kortin og nota þau. Fólk kynnist nýjum leiðum, hjólandi eða á fæti, og fær dýpri skilning á landslaginu og búsetunni í bænum og upplandinu.
Monday, April 2, 2012
Beðið
Saturday, March 31, 2012
Hvannadalur
Við Hvannavelli (HG2009) |
Thursday, March 29, 2012
Vorboðinn Haemoatopus ostralegus
Fyrir suma er lóan vorboðinn en í mínum huga er það tjaldurinn. Ég hef miklar mætur á fuglinum sem er vaðfugl af ættbálki strandfugla og telst til tjaldættar. Í morgun hjólaði ég fram á þrjá félaga að leik við hjólaleiðina sunnan Fossvogskirkjugarðs. Þeir stigu óútskýranlegan dans, sungu og trölluðu svo ekki var hægt annað en að hrífast af galsanum. Þó að þeir hafi ekki boðið upp á uppstillta myndatöku þá létu þeir sé fátt um finnast þótt ég staldraði við fylgdist með þeim úr nálægð. Vorið er komið.
Tjaldur á hjólaleið sunnan Fossvogskirkjugarðs (HG2012) |
Tjaldur á hjólaleið sunnan Fossvogskirkjugarðs (HG2012) |
Tjaldur á hjólaleið sunnan Fossvogskirkjugarðs (HG2012) |
Tuesday, March 27, 2012
Trinidad
Monday, March 26, 2012
Endurnýting
Friday, March 23, 2012
Stamminn. Enn af Kúbu
Í Havana (HG2011) |
Þessi stelpa hefur verið um fimm ára aldurinn. Hún hjólaði áhyggjulaus, að því er virtist, á götum Havana. Sjálfur hafði ég ekki miklar áhyggjur af henni enda afar lítil og hæg umferð í miðborginni.
Í Vinealis (HG2012) |
Það er vöruskortur á Kúbu. Ég sá hvergi barnastóla en það kom ekki í veg fyrir að foreldrar hjóluðu með börnin sín. Neyðin kennir naktri konu að spinna segir máltækið og það á vel við þar í landi. Íbúarnir eru sérfræðingar halda við hlutum og smíða það sem ekki fæst í búðum. Það sést vel á öllum gömlu bílunum sem enn eru götunum og hafa verið frá því fyrir bylting. Hvað þá bögglaberi með ásetu - ekkert mál.
Í Vinealis (HG2012) |
Ein af mínum uppáhalds myndum. Það verður ekki fallegra. Myndin þarfnast engrar útskýringar.
Í Vinealis (HG2012) |
Dæmigerð borgarmynd í landi byltingarinnar.
Wednesday, March 21, 2012
Stamminn
Plaza Vieja í Havana (HG2011) |
Í Vinealis (HG2012) |
Tuesday, March 13, 2012
Garðabær leynir á sér
Nafnlaus restrasjón við Arnarnesvog (HG2012) |
Monday, March 12, 2012
Hjólatúr
Breki og Helgafell í baksýn (HG2012) |
Við fórum "gamla" Kaldárselsveginn því þar er ágætt að sleppa Flosa lausum. Að vísu er alltaf hætta á að rekast á hestamenn og við þurfum að vera vel vakandi og óla Flosa ef við sjáum glitta í þá. Einnig er alltaf hætta á að rekast á aðra hunda en þeim hefur fjölgað mikið á undanförnum árum sem ganga með hundana sína um þessar slóðir. Það er ekki skrítið þar sem þetta er frábært útvistarland. Þess vegna förum við oft snemma eða seint á kvöldin til að fá þessa verða fyrir minstu ónæði og til að fá þessa tilfinningu að við séum einir á ferð. Við þekkjum líka fáfarnar slóðir sem við förum stundum en þær er fæstar gott að hjóla.
Veðrið var ágætt, t.t. hlýtt en blautt og það gekk á með éljum. Við vorum vel klæddir svo það kom ekki að sök en hundurinn varð eins og drullusokkur.
Leiðangursmenn við skálann í Kaldárseli (HG2012) |
Thursday, March 8, 2012
Hvað fara margir hjólreiðamenn um Fossvoginn á degi hverjum?
Um 18 hjólreiðamenn höfðu fari um þessi gatnamót kl. 8:30 í morgun |
Það er löngu tímabært að hefja talningar á hjólreiðafólki. Fyrir þá sem vinna við eða rannsaka samgöngur er bagalegt að ekki séu til nákvæmar tölur yfir fjölda hjólreiðamanna. Talningar á bílum við götur eða gatnamót eru mikilvægar forsendur fyrir stefnumörkun og verkáætlun fyrir umferðamannvirki. Það sam gildir um hjólreiðar. Koma þarf upp teljurum við valdar hjólaleiðir í borginni. Með því móti fást marktækar tölur um raunverulegan fjölda hjólreiðamanna og hvar álagið er mest. Þá verður hægt að meta þörfina fyrir uppbyggingu hjólaleiða í borginni. Hvort, hvar og hvernig?
Wednesday, February 8, 2012
Fækkum bílum í miðbænum
(Mynd: HG2012) |
En það er fleira sem er bannað á Laugaveginum. Þar eru hundar bannaðir. Ég er einnig sammála því. Hundar eiga lítið erindi í miðbæi að mínu mati. Sumu fólki stafar ógn af hundum og sumir hundaeigendur eru sóðar. Aðrir hundaeigendur hafa ekki nægan aga á hundinum sínum og svo eru hundar misjanflega vel til þess fallnir að vera þar sem búast má við margmenni. Sem sagt það er í mínum huga réttlætanlegt að banna hunda á Laugaveginum. Hins vegar þykir mér það einkennilegt að á sama tíma getur þú komið með 1500 kg. stálklump með þér þangað og það sem meira er að borgin skaffar þér stæði fyrir ferlíkið. Persónulega stafar mér meiri ógn af bílum en hundum. Bílum fylgir sannarlega sóðaskapur og ökumenn eru misjaflega hæfir til að aka bílum. Ég held að það ætti að banna bíla á Laugaveginum og Bankastræti frá Snorrabraut að Lækjargötu. Gerum allan Laugavegin að göngugötu ...og Strandgötuna í 220 einnig.
Borgarstiklur - Laugavegur sumarið 2011 from Borghildur on Vimeo.
Borgaryfirvöld í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum ættu að ganga lengra og leggja jafn mikla áherslu á að fækka bílum og hundum í miðbænum. Það væri t.d. hægt með fækkun bílastæða og lækkun hámarkshraða úr 50 í 30 eða jafnvel 15 km/klst og taka upp vegatolla. Með því móti myndi fjölga þeim sem ganga eða hjóla og miðbærin verður enn lífvænlegri íverustaður. Þetta hefur verið gert víða erlendi með góðum árangri, meira að segja á Broadway í New York af öllum stöðum. Mín skoðun er þessi: lækkum hámarkshraða í miðbæjum, fækkum bílastæðum, þrengjum götur og stækkum gangstéttar.
![]() |
(Mynd: inhabit.com) |
Subscribe to:
Posts (Atom)